06.11.1934
Efri deild: 31. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 966 í B-deild Alþingistíðinda. (1233)

26. mál, vinnumiðlun

Forseti (IngP):

Út af orðum hv. 1. þm. Skagf. um fjarveru forseta og 1. varaforseta vil ég taka þetta fram: Forseti d. hefir verið lasinn undanfarna daga og 1. varaforseti fékk leyfi vegna jarðarfarar mágs síns. Ég vil, að þetta sé staðfest í Alþt., svo að orð hv. þm. valdi ekki misskilningi.