18.12.1934
Efri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (1266)

29. mál, markaðs- og verðjöfnunarsjóður

Jón Auðunn Jónason:

Ég vakti máls á því við 2. umr., að mér þætti fyrirsögn frv. ekki sem heppilegust, þar sem búið er að samþ. ýmislegt um verðjöfnunarsjóð. Ég vildi því gera að till. minni, að fyrirsögnin yrði: Frv. til l. um markaðs- og verðjöfnunarsjóð fiskjar.