18.12.1934
Efri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (1276)

29. mál, markaðs- og verðjöfnunarsjóður

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég hefi athugað í Nd., hvort svo var sem mig minnti, að um prentvillu væri að ræða, en svo er ekki. Hinsvegar sé ég ekki ástæðu til að breyta fyrirsögninni og held því, að ég verði að greiða atkv. móti till., svo að málið þvælist ekki milli deilda.