07.12.1935
Efri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í B-deild Alþingistíðinda. (1455)

12. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (EÁrna):

Mér hefir borizt skrifl. brtt. frá hv. þm. Dal., um að aftan við 24. gr. b. bætist nýr liður svo hljóðandi: „Yfirskattanefndarmenn þeir, sem nú eru, halda starfi sínu þar til 6 ára skattanefndartími þeirra er útrunninn“. Till. er skrifl. og þar að auki of seint fram komin. Þarf því tvennskonar afbrigði. Vil ég spyrja hæstv. stj. hvort hún heimilar afbrigði og þar að auki bera það undir þd.