30.11.1934
Sameinað þing: 17. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2837 í B-deild Alþingistíðinda. (150)

Kosningar

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Mér þykir miður, ef ég þarf að aflýsa fundi á morgun, þar sem búið er að boða hann, og ég býst ekki við, að hann taki langan tíma. Ég efa líka, að hv. þm. G.-K. hafi haft umboð sinna flokksmanna, eða talað við þá alla, til að gefa þessa yfirlýsingu. (ÓTh: Það hefi ég áreiðanlega gert, og hæstv. ráðh. þarf ekki að bera kvíðboga fyrir því).