22.10.1934
Neðri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1130 í B-deild Alþingistíðinda. (1518)
19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar
Frsm. (Héðinn Valdimarsson):
Það er rétt, að frv. stendur jafnt eftir sem áður, þótt brtt. hv. 2. landsk. verði samþ., en ég álít þó ekki rétt að gera þess, breyt. á frv. Í grg. segir svo um þetta atriði:
„Við 2. málsgr. óskaði Læknafélagið þeirrar breytingar, að hún næði til lækna almennt en hinsvegar væri enginn læknir skyldaður til að láta í té þessar leiðbeiningar, heldur eingöngu veitt heimild til þess. Á þetta verður ekki fallizt. Grundvallandi atriði frumvarpsins er að veita konum áreiðanlega fræðslu og sem öruggastar leiðbeiningar um varnir gegn barngetnaði. Og að þeirri fræðslu og þeim leiðbeiningum eiga konur að eiga vísan aðgang hjá lækni sínum. Það verður að vera læknisskylda hans að sinna þeirri eftirleitan. Undan þeirri skyldu þykir þó sjálfsagt að skilja lækna, er ekki fást við lækningar, svo og þá, sem aðeins starfa að sérgreinum, sem þessum efnum eru óskyldar, svo sem augnlækna, geislalækna o. fl. Engin lög þarf að setja til að heimila læknum að láta slíkar leiðbeiningar í té, með því að ekki hefir verið dregið í efa, að slík leiðbeiningastarfsemi væri hverjum einum heimil“.
Ef þessi málsgr. væri ekki, mætti búast við, að til væru læknar, sem ekkert vildu við þetta eiga og teldu mannfjölgunar þörf eins og hv. 2. landsk. Um það atriði má auðvitað deila, en þó er það frá mínu sjónarmiði þjóðinni meira virði að ala upp nýta og heilbrigða menn og sjá vel fyrir þeim en ala upp sem flesta menn án þess að sjá fyrir þeim, eins og atvinnuleysi síðustu ára ber ljósastan vott um. Út af fyrir sig er það ekkert keppikefli, að fólkinu fjölgi ört, ef lífsskilyrðin eru léleg. Það vita allir, að mörg börn fæðast hér á landi við svo slæm skilyrði, að allir geta verið sammála um, að betur hefði farið, að þau börn hefðu ekki fæðst, enda oft og tíðum í heiminn kominn gegn vilja hlutaðeigandi foreldra. 2. málsgr. 1. gr. tryggir það, að karlar og konur, sem telja sig þurfa upplýsingar í þessum efnum, hafi aðstöðu til þess að fá þær fyrirstöðulaust. Ég vænti því, að hv. þd. samþ. þetta frv. óbreytt.