08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í B-deild Alþingistíðinda. (1556)
19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar
Thor Thors:
Þetta mál hefir orðið talsvert ágreiningsmál í Ed., og svo virðist, sem það sé það einnig með þjóðinni. Og þar sem þetta mál var mjög lítið rætt hér í Nd., áður en það fór til Ed., vildi ég mælast til þess, að allshn. þessarar d. fengi tíma til þess að taka það til nýrrar athugunar. Vil ég spyrja hv. form. allshn., hvort hann sé því ekki samþykkur.