08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1565)

19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar

Thor Thors:

Ég vil benda á það, að við umr. hér í hv. d. var það aðeins einn þm., hv. 2. landsk. (MT), sem hreyfði andmælum gegn frv. Og þó að það sé ekki mitt hlutskipti að gæta hagsmuna hans, þá finnst mér viðkunnanlegra, að hann fái að tala í málinu, áður en það er afgr. sem l. Mér finnst, að þetta mæli með því, að frekari athugun sé viðhöfð áður en það verður samþ.