21.11.1934
Efri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1564 í B-deild Alþingistíðinda. (1629)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Umr. um þetta mál hefir hvað eftir annað verið frestað og það orðið fyrir miklum töfum. Ég vil því mælast til þess, að verði umr. frestað nú, þá verði það ekki nema þar til seinni partinn í dag. Nú líður að eldhúsumr., og málið þyrfti að vera komið úr d. áður.