10.12.1934
Sameinað þing: 20. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2840 í B-deild Alþingistíðinda. (163)

Kosningar

Ólafur Thors:

Ég vildi leyfa mér að fara fram á það við hæstv. atvmrh., að hann segði álit sitt um það, hvort hann teldi, að rétt væri og eðlilegt í þetta skipti og til frambúðar að fylgja þeirri grundvallarreglu, að hver þingflokkur fengi fulltrúa í þessa n., meðan flokkarnir eru ekki fleiri heldur en nm. eru.