13.12.1934
Neðri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1638 í B-deild Alþingistíðinda. (1691)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Forseti (JörB):

Ég vona, að það standi ekki í veginum, þótt 2. umr. verði lokið.

Ég get tekið undir það með hv. þm. G. K., að það sé hyggilegt fyrir afgreiðslu málsins, að þeim, sem fyrir þessu máli standa sérstaklega, gefist kostur á að bera ráð sín saman milli 2. og 3. umr. Ég vil vona, að menn geti nú orðið ásáttir um þessa lausn málsins.