19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1664 í B-deild Alþingistíðinda. (1743)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

1) ÓTh:

Svipuð till. og þessi lá fyrir við 2. umr., þá flutt af landbn., með þeim skilaboðum til d., að mér skildist, að um þetta hefði náðst samkomulag milli þeirra aðila, sem við það eiga að búa. Nú er komið í ljós, að ekkert samkomulag er fengið, hvorki um þetta atriði né önnur, sem snerta hagsmunastreitu Rvíkur og annara kjördæma í þessu máli. Ég hefði óskað eftir að geta verið með þessari undanþágu, en ég vil ekki setja lögin í þann voða, sem mér sýnist þeim búinn, ef þetta er samþ., og sé mér því ekki fært annað en að segja nei.