10.12.1934
Sameinað þing: 22. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2843 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

Kosningar

Ólafur Thors:

Ég vil aðeins um leið og ég leyfi mér að leggja fram lista fyrir hönd Sjálfstfl., lista með nöfnunum Magnús Guðmundsson og Magnús Jónsson, lýsa yfir því, að ef aðrir flokkar þingsins telja það rétt, að enginn stjórnmálaflokkur eigi nema einn fulltrúa í þessari n. meðan flokkar þingsins eru jafnmargir eða fleiri heldur en mennirnir eru, sem á að kjósa í n., þá er Sjálfstfl. fyrir sitt leyti reiðubúinn til þess að taka undir það með því að draga aftur annan þeirra manna, sem hann hefir sett á sinn lista.