19.12.1934
Efri deild: 66. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1665 í B-deild Alþingistíðinda. (1790)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Magnús Guðmundsson:

Ég vil geta þess, að ég hefi ekki getað fylgzt með því, hvað samþ. hefir verið af brtt. við þetta frv. í hv. Nd. og þykir mér undarlegt, ef hæstv. landbrh. skýrir ekki frá því hér í d., þar sem vitanlegt er, að við hér í d. höfum ekki haft nokkurt tækifæri til að fylgjast með því, sem gerist í Nd., því að fundur hefir staðið hér yfir í allan dag. Annaðhvort verður því að gefa skýringu eða fresta málinu.