01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (1841)

5. mál, útflutningsgjald

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég get ekki annað sagt en að orð hv. þm. Ak. hafi átakanlega sannað það, sem ég gizkaði á, að margt af frv. hv. stj.andstæðinga væru borin fram án nokkurrar trúar á, að þau gangi fram. Á þetta vildi ég leggja sérstaka áherzlu.