17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1272 í B-deild Alþingistíðinda. (1882)

5. mál, útflutningsgjald

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég var ekki viðstaddur í hv. Ed., þegar þetta ákvæði var sett inn í frv., en mér hefir verið sagt, að það hafi verið túlkað þannig af flm., að hér væri ekki um venjuleg hafnargjöld að ræða, heldur einungis, ef lagt væri á sérstakt útflutningsgjald.

Ég vil láta það koma skýrt fram, að þennan skilning hefi ég á þessu atriði og styðst þar við það, sem kom fram í umr. í hv. Ed., enda er það sýnilegt á orðalagi þessa ákvæðis, að átt er við sérstakt útflutningsgjald.