21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (1934)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Frsm. meiri hl. (Héðinn Valdimarsson):

Eins og lýst hefir verið yfir af hæstv. atvmrh., munum við Alþýðuflokksmenn gr. atkv. á móti þessari brtt. Lítum við svo á, að það muni alls ekki bæta n. eða flýta fyrir störfum hennar, að sjálfstæðismenn taki þar sæti. Hin stjórnskipaða n. getur starfað eins þó þetta frv. verði fellt, en verkið verður nokkru erfiðara og þarf því lengri tíma. Auk þess er ekki rétt, að þingið fari að kjósa menn í stjórnskipaða n.