21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (1941)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Jakob Möller:
Mér skilst, að þegar 32 menn eru í deildinni, þá sé ekki hægt að samþ. löglega neitt mál með 15 atkv. (Forseti: Jú, jú ). Því aðeins að hæstv. forseti úrskurði nægilega marga óatkvæðisbæra menn hér í deildinni, get ég fallizt á, að hann hafi lög að mæla, en þann úrskurð hefi ég ekki heyrt.