21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1945)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég vil aðeins taka undir með hæstv. forseta, að ekki hafi þýðingu að þrátta um þetta, því alla þá tíð, sem ég hefi setið í þessari hv. d., hefir svona afgr. verið tekin gild og daglega leitað mótatkv. til þess að fá löglegan meiri hluta til þátttöku í atkvgr. og tryggja með því þingsköp.