21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Forseti (JörB):

Það græðist ekkert á þessum umr., heldur eru það stöðugt sömu atriðin, sem koma fram. Ég vil benda hv. 3. þm. Reykv. á að í næstsíðasta máli var samþykkt gerð með líku móti, um brtt. um fiskiráð, án þess að nokkur mótmæli kæmu fram, enda var þess eigi þörf.