07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (1996)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Ásgeir Ásgeirsson:

Mér sýnist horfa svo við eftir þeirri atkvgr., sem áður hefir farið fram hér, að það vera lítill vandi fyrir mig að greiða atkv., því ef ég segi já, mun till. verða samþ., og ef ég segi nei mun hún líka verða samþ. (ÓTh: Þá er bezt að taka á sig enga ábyrgð og segja hvorugt). Þótt ég sé yfirleitt tregur til að greiða atkv. með að skera niður umr., þá mun ég gera það í þetta sinn að gefnu tilefni, enda veit ég, að þeir, sem kynnu enn að eiga einhver óbrúkuð „argument“ í fórum sínum, munu geta sent þau til Ed. með frv. (ÓTh: Á bakinu á henni Rauðku)