07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (1997)
33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála
Jakob Möller:
Mér finnst allar sömu forsendur vera fyrir hendi enn, sem fyrir hendi voru þegar gengið var til atkv. um samskonar till. fyrr á fundinum. Síðan hafa aðeins þrír dm. talað, og get ég því ekki látið mér skiljast, að þær kringumstæður séu fyrir hendi, sem ákvæði þingskapanna gera ráð fyrir, þar sem segir, að einungis sé heimilt að gera slík, samþykkt, þegar umr. keyra úr hófi fram. Ég fæ ekki betur séð en það sé sama brotið á anda þingskapanna, sem hér er í ráði að framkvæma, aðeins sú breyt. hefir orðið, að bætzt hefir í d. einn maður, sem fúslega hefir léð stjórnarliðinu lið sitt til þess að framkvæma það ofbeldisverk og gerræði, sem hér á að hafa í frami. Greiði ég því ekki atkv.