19.10.1934
Efri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1668 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)

36. mál, þingsköp Alþingis

Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Um þetta frv. er fátt að segja. N. er sammála um að láta það ganga óbreytt fram. Það er eindregin ósk forseta Sþ., að máli þessu verði hraðað. Hinsvegar býst n. við fleiri brtt. við þingsköp, en hún taldi ekki rétt að láta þessa bíða eftir því. N. leggur því til, að málið gangi fram eins og það liggur fyrir á þskj. 36.