22.12.1934
Efri deild: 69. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2849 í B-deild Alþingistíðinda. (204)

Starfslok deilda

forseti (EÁrna):

Fyrir þessum fundi liggur það verkefni eitt, að ljúka störfum deildarinnar. Ég finn á þessum síðasta fundi að þessu sinni ástæðu til þess að þakka öllum hv. þdm. fyrir ágæta samvinnu. Svo sem endranær hefir það verið margt, sem borið hefir á milli flokka á þessu þingi, en þrátt fyrir það hafa allir ávallt gætt ýtrustu kurteisi og prúðmennsku. Mér er ánægja að geta þessa, og um leið vil ég þakka öllum hv. þdm. það umburðarlyndi, sem þeir hafa sýnt gagnvart því, sem kann að hafa verið áfátt í fundastjórn minni.

Ég óska svo að lokum öllum hv. þdm. farsællar ferðar, góðrar heimkomu og gleðilegra jóla og vona, að við megum allir hittast hér heilir á næsta þingi.