07.12.1934
Efri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1936 í B-deild Alþingistíðinda. (2075)

73. mál, stjórn og starfræksla póst- og símamála

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Ég get að sjálfsögðu enga bindandi yfirlýsingu gefið í þessu efni. Ég geri ráð fyrir, að eins og við embættaveitingar yfirleitt verði venjulega a. m. k. farið eftir till. hlutaðeigandi starfsmanna og yfirmanna. Ég skal játa, að undir venjulegum kringumstæðum finnst mér sjálfsagt að heimta fyrst og fremst þekkingu á símritun af þeim, sem þessi störf fá, þar sem símritunarstöðvar eru.