10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1937 í B-deild Alþingistíðinda. (2081)

73. mál, stjórn og starfræksla póst- og símamála

Guðbrandur Ísberg:

Það er rétt, að í Ed. kom fram brtt. lík að efni til og þessi, en var felld. En ég held, að ég megi fullyrða, að það hafi verið gert af vangá. Þannig stóð á, að önnur till. um þetta efni, en miklu víðtækari, var borin þar fram, og voru margir á einu máli um að fella hana, en þá tókst svo til, að þessi dróst með.

Annars fæ ég ekki skilið, að menn geti verið á móti því, að menn í þessu þýðingarmikla starfi séu skyldir að hafa nauðsynlega grundvallarþekkingu, svo líkur séu til, að þeir geti leyst störf sín sæmilega af hendi.