22.12.1934
Sameinað þing: 29. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2852 í B-deild Alþingistíðinda. (212)

Þinglausnir

forsrh. (Hermann Jónasson):

Það eru nú liðin 1004 ár síðan Alþingi Íslendinga var stofnað, en þetta er 48. löggjafarþingið síðan Alþingi var endurreist. Ég leyfi mér í því umboði konungs, sem ég las upp, og í nafni hans að segja þessu Alþingi slitið.

Lengi lifi ættjörðin og konungurinn. [Tók þingheimur undir með ferföldu húrrahrópi].

Var síðan af þingi gengið.