08.10.1934
Sameinað þing: 3. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (229)

1. mál, fjárlög 1935

Magnús Jónsson:

Ég vildi leyfa mér að gera fyrirspurn viðvíkjandi formi á þessari umr. Ég hefi ekki orðið var við, að fjárlagafrv. hafi verið útbýtt í Sþ., og ég hefi ekki heldur séð það í bókun Sþ., að þessu frv. hafi verið útbýtt, en mér skilst, að það hljóti að verða að hlíta þeim reglum, að hafa legið frammi 2 nætur áður en það kemur til umr.