20.10.1934
Neðri deild: 15. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1759 í B-deild Alþingistíðinda. (2302)
44. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Frsm. meiri h). (Bergur Jónsson) [óyfirl.]:
Hv. frsm. minni hl. allshn. virðist nú ögn vera farinn að skilja frv., en ekki tilgang þess. Tilgangur frv. er að heimila að reyna að bæta ástandið, þar sem ekki stendur meiri hl. bæjarstj. að kosningu bæjarstjóra, ekki þar, sem þeir hlaupa frá bæjarstjóra, er tekið hafa ábyrgð á kosningu hans, heldur þar, sem bæjarstjóri er kosinn gegn vilja meiri hl. og heldur áfram að vera í andstöðu við meiri hl. bæjarstj.
Hitt er útúrsnúningur hjá hv. þm., en alls ekki hugsunarvilla hjá mér, að frv. nái ekki því marki, sem því er ætlað. Það er misskilningur hjá hv. 8. landsk., að með frv. sé verið að setja ákvæði um endurkosningar á þeim stöðum, þar sem bæjarstjóri hefir verið kosinn af meiri hl. bæjarstj.