08.10.1934
Sameinað þing: 3. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (232)

1. mál, fjárlög 1935

Forseti (JBald):

Þetta mun vera misskilningur hjá hv. þm. Það hefir verið venja að taka mál fyrir í Sþ., þó ekki hafi sérstaklega verið settur fundur til þess að segja þau útbýtt þar. Það mun mega finna mörg dæmi þess, eins og hv. þm. sjálfsagt veit, sem er svo gamall þm.