05.12.1934
Efri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1940 í B-deild Alþingistíðinda. (2413)

149. mál, útsvar

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Eins og sést á nál. fjhn. á þskj. 634, leggur n. til, að frv. verði samþ. Þetta frv. er einskonar dilkur annars frv., sem hér liggur til meðferðar í dag. Það er frv. um tekju- og eignarskatt, eins og gerð er nánari grein fyrir, bæði í grg. frv. og líka í nál. okkar, og þess vegna er ekki ástæða til þess að endurtaka það hér.