12.11.1934
Efri deild: 36. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1795 í B-deild Alþingistíðinda. (2442)

94. mál, hafnargerð í Ólafsvík

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Breyt. sú, sem hér er farið fram á að gera á l. um hafnargerð í Ólafsvík, er gerð samkv. ósk hreppsnefndarinnar þar. Hún telur sig ekki hafa nægilega heimild til þess að taka eignarnámi það, sem nauðsynlegt er vegna hafnargerðarinnar. Því er bætt hér inn í „húsum og hverskonar mannvirkjum“.

N. leggur til, að frv. verði samþ.