07.12.1934
Efri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (2468)

149. mál, útsvar

Forseti (EÁrna):

Mér var þetta vel ljóst áður en ég tók frv. til umr. En af því að það liggur fyrir brtt. við það, sem, ef hún verður samþ., veldur því, að þetta frv. þarf líka til Nd. aftur, þá þótti mér rétt að láta fara fram atkv. um hana nú. Verði hinsvegar brtt. felld, þá má ljúka umr., en fresta atkvgr. um frv. sjálft, þangað til útséð er um afdrif tekju- og eignarskattsfrv. í Nd.