27.11.1934
Neðri deild: 46. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (2586)

124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi

Frsm. (Bjarni Bjarnason):

Fyrir hönd samgmn. vil ég geta þess, að n. hefir ekki unnizt tími til þess að taka ákvörðun um brtt., sem fram hafa komið við þetta frv., af ýmsum ástæðum, sem ég hirði ekki um að greina hér. N. hefir því ekki tekið afstöðu um þessar brtt., og hefir hún því óbundnar hendur um atkvgr. um hana.

Finn ég ekki ástæðu til þess f. h. n. að tefja framgang þessa máls.