22.11.1934
Efri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1829 í B-deild Alþingistíðinda. (2624)

83. mál, útvarpsrekstur ríkisins

Magnús Jónsson:

Það er í raun og veru aðeins af aðgæzluleysi, að ég bar ekki fram brtt. við frv. við þessa umr. Ég hreyfði dálitlum aths. við fyrri umr. málsins, og sé nú, að hv. 5. landsk. skrifar hér undir nál. með nokkuð svipuðum fyrirvara eins og því, sem ég minntist á þá, og ef nokkuð á úr því að verða meira, þá verður vitaskuld að bera fram till. um, að þessu verði breytt í frv. Það er ennfremur fleira í frv., sem ég fyrir mitt leyti vildi hafa öðruvísi, og mun ég bera fram brtt. um það.