16.11.1934
Neðri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (2709)

119. mál, tollundanþága fyrir tunnuefni og hamp

Frsm. (Guðbrandur Ísberg):

Um brtt. á þskj. 465 get ég látið nægja að vísa til þess, sem hv. síðasti ræðumaður hefir þegar sagt.

Hinsvegar verð ég að leggjast alveg á móti brtt. hv. þm. A.-Húnv. á þskj. 467. Það er þó ekki af því, að ég sé í sjálfu sér andvígur efni hennar, heldur af því, að hér er um gersamlega óskylt efni að ræða, og ætti því að koma sérstakt frv. fram um tollfrelsi fyrir trjáplöntur, en ekki blanda þeim saman við iðnaðarvörur, sem eru algerlega fjarskyldar, enda er þar nauðsynin á tollfrelsi meiri. Ég legg því til, að frv. verði samþ. óbreytt.