04.12.1934
Neðri deild: 50. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2019 í B-deild Alþingistíðinda. (2738)
104. mál, síldarverksmiðjur ríkisins
Ásgeir Ásgeirsson:
Ég hefi lagt fram brtt. um það, að formaður síldarverksmiðjustj. skuli kosinn til jafnlangs tíma og hinir stjórnarnefndarmennirnir. Upphaflega var svo til ætlazt, að atvmrh. skipaði stj. síldarverksmiðjanna, en því var breytt á þann veg, að fjórir stjórnarnefndarmannanna skuli kosnir af Alþ. hlutbundnum kosningum. Það þykir æskilegt, að stj. sé þannig skipuð, að hún sé í samræmi við stj. landsins á hverjum tíma, en þetta er ekki tryggt, eins og frv. er nú úr garði gert, enda þótt formaðurinn sé ekki skipaður nema til eins árs í senn. Ég tel óheppilegt að skipa formanninn til svo skamms tíma, því að mest starf og ábyrgð hlýtur að hvíla á honum, og er því nauðsynlegt, að hann hafi nokkurt öryggi í stjórninni. Tel ég því heppilegast, að allir stjórnarnefndarmennirnir séu kjörnir til jafnlangs tíma, bæði þeir þingkosnu og sá, sem ráðh. tilnefnir.