02.11.1934
Neðri deild: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (2791)
75. mál, varðskip landsins og skipverja á þeim
Pétur Ottesen [óyfirl.]:
Mér finnst undarlegt, að þetta frv., sem einkum og sérstaklega fer í þá átt að breyta launakjörum yfirmanna á varðskipunum, skuli koma fram einmitt nú. Það er undarlegt, að einmitt nú skuli vera ástæða til að hækka verulega laun þessara manna. Það er kunnugt, að nú er að fara fram athugun á launakjörum allra starfsmanna ríkisins af sérstakri n., sem skipuð var samkv. þál. síðasta þings, og að þessi n. er nú langt komin með sitt starf. Auk þess er nú í fjárlagafrv. stj. lagt til, að felld verði niður dýrtíðaruppbót á öllum launum, sem fara yfir 4000 kr., sem vitanlega veldur allmikilli lækkun hjá flestum þeim starfsmönnum, sem hafa meiri laun en 4000 kr. Þess vegna er það undarlegt, að frv. skuli koma fram um laun þessara manna öðruvísi en í sambandi við launamálið í heild. Ég vil benda á það t. d. um þá hækkun á launum þessara manna, sem gert er ráð fyrir í frv., að 1. vélstjóri, sem nú hefir 6290 kr. á ári, á að hafa samkv. frv. 8184 kr., eftir þeim skýrslum, sem forstöðumaður ríkisskipanna hefir gefið. Ennfremur hefir skipstjóri á varðskipunum nú 7190 kr. í laun, en á að fá eftir frv. 10654 kr., og meira til með tilliti til þeirrar launauppbótar, sem bætist á laun skipverja á varðskipunum í hlutfalli við upphæð launanna.
Ég vildi aðeins drepa á þetta hv. sjútvn. til athugunar, sem væntanlega fær frv. þetta til meðferðar. Og ég vil vænta þess, að hún taki það til hliðsjónar við þetta frv., að nú eru í undirbúningi gagngerðar breytingar á launalögunum í heild, og ennfremur, að gera má ráð fyrir, að niður falli dýrtíðaruppbót á laun embættismanna á næsta ári, eins og lagt er til í fjárlagafrv. stjórnarinnar.