02.10.1934
Sameinað þing: 1. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (28)

Kosning til efrideildar

Héðinn Valdimarsson:

Ég lít svo á, að þótt það sé ekki bein skylda samkv. þingsköpum, að flokkar setji eftir atkvæðafjölda menn í Ed., þá eigi það svo að vera og sé „mórölsk“ skylda. Þess vegna leyfi ég mér að koma með þennan lista fyrir Bændaflokkinn, úr því að hann vill það ekki sjálfur. En ef Bændaflokkurinn kemur sjálfur með lista, skal ég draga mig til baka.