08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (2802)

75. mál, varðskip landsins og skipverja á þeim

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt svo hljóðandi rökst. dagskrá frá hv. þm. Borgf.:

„Með því að nú stendur yfir endurskoðun á launalögunum, og ný samræmileg skipun þeirra mála verður væntanlega gerð á næsta þingi, þá þykir ekki hlýða að taka nú út úr einstaka starfsflokka og breyta þar launum, og tekur deildin því fyrir næsta mál á dagskrá.“

Þessi rökst. dagskrá liggur þá hér fyrir til umr.