17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2278 í B-deild Alþingistíðinda. (2947)

106. mál, vélgæsla á mótorskipum

Garðar Þorsteinsson:

Ég skal fúslega viðurkenna, að ég hefi ekki fagþekkingu í þessu máli, og ég skal líka játa, að bæði formælendur og andmælendur þess hafa „agiterað“ af svo miklu kappi og með svo sterkum rökum, að þeir hafa sannfært mig á víxl. Ég mun þó með svipuðum forsendum og hv. 2. þm. Árn., sem síðast talaði, segja nei.