11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (3006)

174. mál, skattgreiðsla h/f Eimskipafélags Íslands

Stefán Jóh. Stefánsson:

Frv. þetta, sem er flutt af fjhn., fer fram á það, að framlengd verði gildandi lög um skattgreiðslu Eimskipafélags Íslands og skyldu þá, sem í nokkur ár hefir hvílt á félaginu um að láta af hendi til ríkisins nokkra farseðla. Fjhn. leggur til, að lögin verði framlengd óbreytt, eins og gert hefir verið undanfarin tvö ár.