24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2286 í B-deild Alþingistíðinda. (3040)

148. mál, stimpilgjald

Thor Thors:

Þetta hefir komið fyrir aðeins tvisvar sinnum, þegar vantaði einn af þm. Sjálfstfl., að hæstv. forseti sjálfur greiddi þá ekki atkv., til þess að ekki þyrfti að fresta atkvgr. Sé ég ekki ástæðu til að þetta gildi, þegar vantar marga þm. úr öllum flokkum. Hæstv. forseti hefir úrskurðað, að atkvgr. skuli fara fram, og verður að hlíta því.