24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2287 í B-deild Alþingistíðinda. (3043)
148. mál, stimpilgjald
Forseti (JörB):
Ég vil í tilefni af þessu taka það fram, að það er ekki á mínu valdi að sjá svo um, að þm. sitji hjá, þó að mismargir af flokkunum kunni að vera viðstaddir. Hinsvegar þykir mér það ekki nema æskilegt fyrir þm., að sá háttur verði upp tekinn, því að það getur aðeins haft þau einu áhrif að flýta fyrir störfum þingsins. Vil ég beina því til þingflokkanna, hvort þeir vilji ekki taka upp þessa reglu.
Það er rétt, sem hv. þm. Snæf. sagði, að ég sat hjá í ágreiningsmáli nokkru með fyllsta samkomulagi um það við form. Sjálfstfl. Hann óskaði eftir, að frestað yrði atkvgr., sökum þess að einn þm. var veikur. Þá var það uppástunga mín við hann, hvort menn gætu ekki á það fallizt, að atkvgr. færi fram, en einn úr okkar hópi sæti hjá. Sagðist hann geta fallizt á það, því að tilgangur sinn væri ekki að tefja málið, heldur að rétt hlutföll kæmu fram við atkvgr. En það er auðvitað, að um þetta atriði verður að vera samkomulag í hverju einstöku máli, á þann hátt, að sá flokkur, sem þess á að gæta í hvert sinn, láti suma sína þm. sitja hjá.