11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2061 í B-deild Alþingistíðinda. (3152)

130. mál, vátryggingar opinna vélbáta

Pétur Ottesen:

Ég vil láta í ljós ánægju mína yfir því að hv. sjútvn. hefir tekið upp till. hv. þm. V.-Ísf., því þá kemur berlega fram, að ekki er um skyldutryggingu að ræða, heldur fer það eftir fullu samkomulagi á útgerðarstöðunum, hvort komið skuli á tryggingu eða ekki. Ég vildi undirstrika þetta, og tel réttara að afgr. frv. í þessu horfi heldur en það var í upphafi.