11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2062 í B-deild Alþingistíðinda. (3155)

130. mál, vátryggingar opinna vélbáta

Jóhann Jósefsson:

Það er rétt skilið hjá hv. þm. Borgf., að ekki er eins skýlaust ákvæði um skyldutryggingu og var. Ég tel það rétt, úr því ekki er hægt eins og nú standa sakir að fá trillubáta tryggða með viðunandi kjörum, og er því rétt að reyna að koma því í kring án þess að það sé fyrirskipað. En ef það reynist ókleift að koma tryggingunum á án þess að það sé beint fyrirskipað, er alltaf hægt að herða á ákvæðunum.