14.11.1934
Efri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2326 í B-deild Alþingistíðinda. (3221)

49. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Út af ummælum hv. 1. þm. Skagf. vil ég taka það fram, að það tefur fyrir einkasíma, ef búið er að taka línuna upp í símalögin. Það er því rétt, sem landssímastjóri hefir haldið fram, að það eigi ekki að taka upp í símalögin aðrar línur en þær, sem sjáanlegt er, að lagðar verði í náinni framtíð. Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að fara að svara einstökum andmælum, sem fram hafa komið, en óska, að frv. fái afgreiðslu nú þegar frá þessari hv. deild, því að það mun eiga erfiða göngu eftir í gegnum hv. Nd.