10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (3291)

49. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Bergur Jónsson:

Ég á hér eina brtt. á þskj. 497 um 6 símalínur. Hv. samgmn. hefir tekið upp fimm af þeim, enda mun landssímastjóri hafa mælt með þeim. Sjötta línan er að mínu áliti mjög þörf. Ég mun þó við þessa umr. taka aftur brtt. mínar, en bera till. um þessa línu sérstaklega fram við 3. umr.