03.12.1934
Sameinað þing: 18. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 350 í B-deild Alþingistíðinda. (330)

1. mál, fjárlög 1935

Jakob Möller:

Mér skilst, að það hafi farið fram samkomulag á bak við, að hv. þm. V.-Ísf. tæki aftur till. sína. Mér skilst, að með því að fá hv. þm. til að taka till. aftur sé verið að hlunnfara hann að fá þessa till. samþ. og binda þannig atkv. þm. fyrirfram. Ég sé ekki heldur, að það sé útilokað fyrir meiri hl. n. að geyma till. til 3. umr.