27.11.1934
Efri deild: 48. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (3325)

77. mál, áfengislög

Forseti (EÁrna):

Um leið og hv. 1. þm. Eyf. byrjaði ræðu sína, kvaddi hv. 2. þm. S.-M. sér hljóðs. En mér skildist, að hv. 1. þm. Eyf. vildi falla frá orðinu með því skilyrði, að allir aðrir hv. þdm. væru ásáttir um að slíta umr. um málið nú þegar. Vil ég því spyrja hv. 2. þm. S.-M. hvort hann fallist ekki einnig á að falla frá orðinu, ef aðrir hv. þdm. vilja nú hætta umr.